Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 487/2003"
1 dómar fundust
Dómkröfur Ó lutu að viðurkenningu á eignarráðum yfir netlögum jarðar hans, á stærð þeirra mælt frá stórstraumsfjöruborði, á efnislegum heimildum sem í greindum eignarráðum fælust og á því að honum væri heimilt að nýta auðlindir í netlögunum án þess að þurfa til þess almennt veiðileyfi og veiðiheimild samkvæmt lögum. Í dómi Hæstaréttar sagði að kröfur Ó beindust ekki að lögmæti tiltekinna athafna eða ákvarðana Í, heldur miðuðu þær að því að dómstólar kvæðu almennt á um réttarstöðu þá sem fælist í eignarrétti hans að jörð sinni. Í dómkröfum sóknaraðila kynnu að felast efnisþættir sem honum gæti verið heimilt að bera undir dómstóla en hann hefði sjálfur kosið að gera kröfur sínar þannig úr garði að slíkir efnisþættir yrðu ekki greindir úr kröfu hans. Yrði ekki talið að það gæti verið á verksviði dómstóla að lesa slík atriði út úr kröfum á borð við þær sem Ó hefði gert. Var frávísunarúrskurður héraðsdóms því staðfestur.
...gert að greiða sérstakt leyfisgjald, og renni það að hluta til landeigenda, sbr. reglugerð nr. 487/2003 um skiptingu arðs af hreindýrum. Um sé að ræða undanþágu frá 2. mgr...