Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 486/2003"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 15. mars 2007

330/2006

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari) gegn X og Z (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

X fór til hreindýraveiða í september 2003 og naut til þess leiðsagnar eftirlitsmannsins Z. Voru þeir í kjölfarið ákærðir fyrir brot gegn tilteknum ákvæðum laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og reglugerð nr. 486/2003. Í héraði voru X og Z sakfelldir fyrir brot gegn öðrum ákvæðum framangreindra laga og reglugerðar. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að samkvæmt 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 mætti dæma eftir öðrum refsiákvæðum en greindi í ákæru hefði ákærða eða verjanda verið gefið færi á að tjá sig um sakaratriði og vörn þannig ekki orðið áfátt að þessu leyti. X og Z mótmæltu því að þetta hefði verið gert og fyrir Hæstarétti gerði ákæruvaldið auk þess athugasemdir við heimfærslu í héraðsdómi. Þar sem þessa var ekki getið í bókunum þinghalda í héraðsdómi var það gegn mótmælum X og Z talið ósannað. Tekið var fram að í ákæru væri ekki greint á milli þátta X og Z í brotum og að heimfærsla þeirra til refsiákvæða samrýmdist ekki efnislýsingu ákæru sem yrði því óskýr. Þar sem ákæruvaldið hafði hvorki sýnt fram á að bætt hefði verið úr þessu undir rekstri málsins í héraði né að það hefði verið unnt svo vörn málsins yrði ekki ábótavant var málinu vísað frá héraðsdómi.

...64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og reglugerð nr. 486/2003. Í héraði voru X og Z sakfelldir fyrir brot gegn öðrum ákvæðum...