Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 460/2017"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 20. nóvember 2024

40/2024

Ísteka ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem staðfest var niðurstaða héraðsdóms um frávísun á máli Í ehf. á hendur Í frá héraðsdómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Í ehf. leitaði í málinu viðurkenningar á því að matvælaráðherra hefði verið óheimilt að fella alla starfsemi Í ehf. tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum hér á landi undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Hæstiréttur tók fram að Í ehf. hefði í málatilbúnaði sínum ekki rökstutt að fyrirmæli reglugerðarinnar hefðu haft þau áhrif að honum væri ekki unnt að halda áfram starfsemi sinni að svo stöddu. Þvert á móti lægi fyrir að umrædd breyting á stjórnvaldsfyrirmælum hefði enn sem komið er engin áhrif haft á leyfi Í ehf. til starfseminnar. Hefði Í ehf. ekki rökstutt að honum yrði ókleift að halda áfram starfsemi eða með hvaða hætti breytt stjórnvaldsfyrirmæli yrðu honum sérstaklega íþyngjandi. Í ehf. hefði ekki enn lagt fram umsókn um áframhaldandi starfsleyfi eða átt samskipti við stjórnvöld um nánari skilyrði þar um. Væri því óljóst í hverju lögvarðir hagsmunir hans fælust, hvort þeir væru orðnir til og hvaða þýðingu fyrir réttarstöðu hans dómur um viðurkenningarkröfuna hefði eins og hún væri fram sett. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður Í ehf. um lögvarða hagsmuni sína í skilningi 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 væri svo vanreifaður að efnisdómur yrði ekki felldur á kröfu hans. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.

...tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum hér á landi undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Hæstiréttur tók fram að Í ehf. hefði í málatilbúnaði...

Landsréttur birt 26. júní 2024

454/2024

Ísteka ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Með hinum kærða úrskurði var viðurkenningarmáli Í ehf. gegn íslenska ríkinu vísað frá dómi vegna skorts á lögvörðum hagsmunum. Í úrskurði Landsréttar var rakið að samkvæmt héraðsdómsstefnu krefðist Í ehf. þess að viðurkennt yrði með dómi að matvælaráðherra hafi verið óheimilt að fella alla starfsemi Í ehf. undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Í ehf. var ekki talið hafa skilgreint með nægjanlega skýrum hætti hver sú starfsemi væri sem krafan tók til. Var kröfugerð félagsins því ekki talin uppfylla skýrleikakröfur d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var niðurstaða hans staðfest um frávísun málsins frá héraðsdómi.

...undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Í ehf. var ekki talið hafa skilgreint með nægjanlega skýrum hætti hver sú starfsemi væri sem krafan...