Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 400/2020"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 30. ágúst 2024

591/2024

Hilmar Ágúst Hilmarsson (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn ACE Handling ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

H krafðist þess að þrjár aðfarargerðir sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem fram fóru 10. október 2023 og lauk með árangurslausu fjárnámi yrðu felldar úr gildi. Krafa H var einkum reist á því að boðun til aðfarargerðanna hefði ekki farið fram með þeim hætti sem áskilið er í 2. mgr. 21. gr. laga nr. 90/1989 um aðför og að ekki hefði verið fylgt ákvæði 16. gr. laganna um varnarþing. Í úrskurði héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var lagt til grundvallar að boðun með rekjanlegu bréfi Póstsins uppfyllti skilyrði 2. mgr. 21. gr. laga nr. 90/1989. Fallist var á að þrátt fyrir að H ætti lögheimili erlendis hefði mátt beina aðfararbeiðnum til embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar sem rökstudd ástæða væri til að ætla að H hittist fyrir í umdæminu, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 16. gr. laga nr. 90/1989. Var því staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um að hafna kröfum H.

...Virðist sá háttur fá stoð í reglugerð nr. 400/2020 um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu, sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 98/2019 um póstþjónustu, en...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2024

Y-6581/2023

Hilmar Ágúst Hilmarsson (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn þrotabúi ACE Handling ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Hafnað var kröfu sóknaraðila um ógildingu þriggja aðfarargerða sem lauk með því að árangurslaust fjárnám var gert hjá honum að kröfu varnaraðila. Talið var að sá háttur sem hafður var á birtingu boðana til fjárnámsgerðanna með svokölluðum rekjanlegum bréfum fullnægði skilyrði 2. mgr. 21. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Þá var sýslumanni talið hafa verið heimilt að taka aðfararbeiðnirnar fyrir í umdæmi sínu á grundvelli 1. tl. 1. mgr. 16. gr. sömu laga þótt varnaraðili ætti lögheimili erlendis.

...Virðist sá háttur fá stoð í reglugerð nr. 400/2020 um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu, sem sett er með heimild í 41. gr. laga nr. 98/2019 um póstþjónustu, en...