Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 395/1998"
1 dómar fundust
H kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem ógildingarmáli hans gegn handhafa veðskuldabréfs var vísað frá dómi á þeirri forsendu að málið hefði verið höfðað á röngu varnarþingi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að mál til ógildingar á veðskuldabréfi skyldi höfða í þeirri þinghá þar sem bréfinu var eða yrði þinglýst, sbr. 2. mgr. 120. gr. laga nr. 91/1991. Bréfinu hafði upphaflega verið þinglýst á eign í Reykjavík árið 1988, en flutt yfir á fasteign í Garðabæ tveimur árum síðar. Samkvæmt þessu bar að höfða málið í þinghá Héraðsdóms Reykjaness, en í henni væri eignin sem veðskuldabréfið var þinglýst á. Var niðurstaða hins kærða úrskurðar um að vísa málinu frá héraðsdómi því staðfest.
...15/1998 um dómstóla og reglugerð nr. 395/1998 um dómþinghár og þingstaði, eins og henni var breytt með með reglugerð nr. 1109/2010. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur...