Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 37/2011"
2 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli I.F.S. ehf. gegn íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í málinu krafðist einkahlutfélagið þess að viðurkennt yrði með dómi skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir í tengslum við meinta ólögmæta ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við úthlutun á leyfi til veiða á bláuggatúnfiski á árinu 2011. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna í Hæstarétti, kom fram að hvorki væri í stefnu gerð viðhlítandi grein fyrir meintu fjártjóni I.F.S ehf. né væri þar að finna næga umfjöllun um grundvöll bótakröfunnar að öðru leyti. Þannig væri ekki ljóst af málatilbúnaði félagsins hvort meint tjón þess mætti rekja til tekjutaps eða missis hagnaðar eða útlagðs kostnaðar. Var kröfugerð I.F.S ehf. því ekki í samræmi við skilyrði 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991, eins og ákvæðið hefði verið skýrt í dómaframkvæmd, sbr. e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, og var viðurkenningarkröfu I.F.S. ehf. því vísað frá dómi
...Með reglugerð nr. 37/2011, um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski, sbr. lög nr. 151/1996 og lög nr. 116/2006, hafi verið mælt fyrir um reglur um úthlutun og...
Kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu ríksins vegna þess að stefnanda hefði ekki verið úthlutað leyfi til veiða á bláuggatúnfiski á árinu 2011 vísað frá dómi. Stefnandi þótti ekki hafa sýnt fram á lögvarða hagsmuni af kröfugerðinni.
...Með reglugerð nr. 37/2011, um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski, sbr. lög nr. 151/1996 og lög nr. 116/2006, hafi verið mælt fyrir um reglur um úthlutun og...