Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 367/1999"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2000

367/1999

N, r. 367/1999 og Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn John Harald Östervold (Gunnar Sólnes hrl)

J, skipstjóri á norsku skipi, var ákærður fyrir fiskveiðibrot með því að hafa verið á loðnuveiðum innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og notað við veiðarnar loðnunót með möskva undir lágmarksmöskvastærð. Var brotið talið varða við 11. og 12. gr., sbr. 4. mgr. 15. gr. laga nr. 22/1998 um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og 13., sbr. 17. gr. reglugerðar nr. 367/1999 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 1999/2000. Eftir uppkvaðningu héraðsdóms, þar sem J var sakfelldur, voru 2. og 3. mgr. 13. gr. umræddrar reglugerðar felldar úr gildi, auk þess sem felld var úr gildi reglugerð nr. 313/1994 um lágmarksmöskvastærð loðnunóta. Talið var að mælingar á möskvum nótar skips J hefðu verið framkvæmdar í samræmi við gildandi réttarheimildir og að sannað hefði verið að þannig mældir hefðu möskvarnir ekki staðist þágildandi reglur um lágmarksmöskvastærð í loðnunótum. Með vísan til 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var hins vegar talið að dæma bæri málið eftir þeim reglum sem nú giltu og var það óhjákvæmilega talið leiða til sýknu J. Var J því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.

...maí 1999 út reglugerð nr. 367/1999 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 1999/2000. Í 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar sagði að möskvastærð í loðnunótum skyldi...