Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 347/2000"
2 dómar fundust
Aðilar deildu um það hvort veðskuldabréf sem S ehf. gaf út til B væri lán í íslenskum krónum sem bundið væri gengi erlends gjaldmiðils eða hvort um væri að ræða lán í japönskum jenum. Í niðurstöðu Hæstaréttar var m.a. vísað til þess að í skuldabréfinu hefði lánsfjárhæðin eingöngu verið tilgreind í japönskum jenum og hefðu vextir þeir sem tilgreindir voru einnig borið það með sér að um lán í japönskum jenum væri að ræða. Þá hefði verið um að ræða skuldabréf sem hefði haft að geyma tæmandi lýsingu á þeim réttindum sem það veitti og þeim takmörkunum sem á þeim réttindum kynnu að vera. Var því lagt til grundvallar að um gilt lán í japönskum jenum hefði verið að ræða og breytti þar engu um þótt S ehf. hefði fengið lánið greitt út í íslenskum krónum og greitt af láninu með sama hætti. Skipti heldur ekki máli aðdragandi þess að lánið hefði verið veitt. Þá var talið ótvírætt að B hefði haft heimild til þess að lána S ehf. japönsk jen. Var B því sýknuð af kröfum S ehf.
...106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Stefndi hefur það hlutverk að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni, m.a. með því að lána fé til verkefna á...
Kröfu stefnanda þess efnis að í skuldabréfi í erlendri mynt fælist ólögmæt gengistrygging var hafnað.
...106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Stefndi hefur það hlutverk að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni, m.a. með því að lána fé til verkefna á...