Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 326/2000"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 18. febrúar 2022

391/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn BlueWest ehf, Friðgeiri Guðjónssyni, Gabriel Alexander Fest og Sigtryggi Leví Kristóferssyni (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

RH ehf., nú BW ehf., FG, GAF og SLK voru gefin að sök brot gegn lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd og auglýsingu nr. 161/2019 um staðfestingu á stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins á Hornströndum með því að hafa staðið fyrir, skipulagt og selt útsýnisflug með tveimur þyrlum um friðlandið og fyrir að hafa flogið þyrlunum og lent þeim þar án leyfis Umhverfisstofnunar. BW ehf., FG, GAF og SLK gengust við háttseminni en töldu sig ekki bera refsiábyrgð á henni. Í dómi Landsréttar var rakið að útsýnisflug með þyrlum yfir friðlandinu væri ekki leyfisskylt og kom því ekki til álita að refsa ákærðu fyrir það. Þá var rakið að Hornstrandir voru friðlýstar árið 1975 og með heimild í 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 var ráðherra heimilt að fela Umhverfisstofnun að setja nánari reglur um umferðarrétt manna í stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins sem gert var með auglýsingu nr. 161/2019. Væri í 9. gr. reglna í auglýsingunni kveðið á um það með afdráttarlausum hætti að óheimilt sé að lenda þyrlum innan friðlandsins nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Fallist var á að fyrrgreind regla, sem sett væri með stoð í 81. gr. laga nr. 60/2013, væri gild refsiheimild samkvæmt 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. Öðrum röksemdum ákærðu fyrir sýknu var einnig hafnað. BW ehf., FG, GAF og SLK voru því sakfelldir og var þeim gert að greiða sektir í ríkissjóð en FG, GAF og SLK skyldu ella sæta fangelsi í sex daga.

...60/1998 og reglugerð nr. 326/2000 sem sett hafi verið samkvæmt þeirri lagaheimild, sé ekkert að finna yfir Hornstrandir eða Fljótavík. Haft og bannsvæði fyrir flug séu tilgreind þar...

Héraðsdómur Vestfjarða birt 11. maí 2021

S-212/2020

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X, Y, Z og Q (Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Lykilorð: Náttúruvernd.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þyrluflugmenn og vinnuveitandi þeirra sýknaðir vegna lendingar tveggja þyrlna á lendingarstað flugvéla í Fljótavík í Hornstrandafriðlandi

...60/1998 og reglugerð nr. 326/2000 sem sett hafi verið samkvæmt þeirri lagaheimild, sé ekkert að finna yfir Hornstrandir eða Fljótavík. Haft og bannsvæði fyrir flug séu tilgreind þar...