Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 280/1997"
1 dómar fundust
Á stundaði nám í snyrtifræði í Bretlandi. Í ágúst 1996 sótti hún um iðnréttindi til menntamálaráðuneytisins, sem heimilaði henni að gangast undir sveinspróf í snyrtifræði, að lokinni 10 mánaða starfsþjálfun í greininni. Á gerði athugasemdir við niðurstöðu ráðuneytisins, en beiðni hennar um endurupptöku ákvörðunarinnar var hafnað í júní 1997. Í september 1997 ákvað ráðuneytið að endurupptaka ákvörðunina með vísan til 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Leiddi endurupptakan ekki til þess að fallist væri á að viðurkenna nám Á án þess að hún gengist undir próf. Krafðist Á þess þá að ráðuneytið léti fara fram óhlutdrægt einstaklingsbundið mat á menntun hennar og tæki afstöðu til þess hvort að viðurkenna ætti hana til sveinsprófs. Beiðninni var hafnað. Höfðaði Á mál á hendur íslenska ríkinu og krafðist þess að synjun menntamálaráðuneytisins yrði dæmd ólögmæt. Talið var að úrlausn kröfu Á haggaði hvorki gildi ákvarðana ráðuneytisins um starfsréttindi Á né bakaði íslenska ríkinu skyldu til að viðurkenna rétt hennar frekar en gert hefði verið. Var ekki talið að Á hefði fært rök fyrir því að málsóknin, með þessari kröfugerð, þjónaði því markmiði að leyst yrði úr ágreiningi aðilanna. Var staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun málsins.
...560/1995, sem felld hafi verið úr gildi með reglugerð nr. 280/1997. Svo virðist þó sem reglur um veitingu réttinda í snyrtifræði haldi gildi sínu, að minnsta kosti hafi...