Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 279/2002"

1 dómar fundust

Landsréttur birt 26. júní 2024

454/2024

Ísteka ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Með hinum kærða úrskurði var viðurkenningarmáli Í ehf. gegn íslenska ríkinu vísað frá dómi vegna skorts á lögvörðum hagsmunum. Í úrskurði Landsréttar var rakið að samkvæmt héraðsdómsstefnu krefðist Í ehf. þess að viðurkennt yrði með dómi að matvælaráðherra hafi verið óheimilt að fella alla starfsemi Í ehf. undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Í ehf. var ekki talið hafa skilgreint með nægjanlega skýrum hætti hver sú starfsemi væri sem krafan tók til. Var kröfugerð félagsins því ekki talin uppfylla skýrleikakröfur d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var niðurstaða hans staðfest um frávísun málsins frá héraðsdómi.

...Frá árinu 2002 fór starfsemin 3 fram á grundvelli leyfis sem Matvælastofnun gaf út með stoð í reglugerð nr. 279/2002 um dýratilraunir. Þannig byggðist leyfi sem Matvælastofnun gaf stefnanda...