Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 236/2003"
1 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli tveggja erlendra fyrirtækja á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í málinu var þess annars vegar krafist að viðurkennt yrði að öðru fyrirtækinu væri heimilt þrátt fyrir ákvæði 3. töluliðar 3. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir að fjalla í fjölmiðlum um upplýsingar sem lytu að lýsingum á þeim tóbaksvörum sem það setti á markað og hins vegar að fyrirtækjunum væri heimilt þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 að hafa tóbakið eða vörumerki þess sýnilegt á sölustöðum. Í Hæstarétti var með vísan til þess að fyrri liður kröfugerðarinnar væri ekki í því horfi að dómsniðurstaða gæti orðið skýr og afgerandi um það hvernig rétti fyrirtækisins væri háttað, staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að vísa henni frá dómi. Varðandi síðari kröfuliðinn var talið fram komið að viðskiptum lyki ekki með öllu við það að varningurinn væri seldur ÁTVR. Þá mætti ganga út frá því að hömlur samkvæmt 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 væru líklegar til að hafa áhrif á sölu til neytenda á varningi frá fyrirtækjunum, en árangur í sölustarfi smásala hefði augljós áhrif á hagsmuni þeirra. Var því fallist á að áskilnaður um lögvarða hagsmuni stæði því ekki í vegi að fyrirtækin gætu fengið dóm um þessa kröfu. Var úrskurðurinn að því er varðaði þennan kröfulið felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka hann til efnismeðferðar.
...Ennfremur séu lagðar á sóknaraðila umfangsmiklar skyldur samkvæmt reglugerð nr. 236/2003 um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna. Sé þeim þannig gert skylt að prenta viðvörunarmerki...