Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 210/1995"
1 dómar fundust
G samdi við S um kaup á skipi sem G hafði í smíðum. Greindi G og S á um efni samningsins. Taldi G að skriflegur samningur sinn við S, þar sem kaupverð skipsins var tilgreint, hefði verið málamyndagerningur, enda hefði ekki verið unnt að tilgreina endanlegt verð skipsins á þeim tíma er samningurinn var gerður. Við útgáfu afsals fyrir skipinu krafði G S um 625.000 kr. viðbótargreiðslu á þeirri forsendu að framleiðslukostnaður hefði aukist vegna reglugerðarbreytinga á smíðatíma skipsins. Greiddi S upphæðina með fyrirvara en höfðaði síðar mál til endurgreiðslu hennar, auk þess sem hann krafði G um greiðslu vegna kostnaðar síns við endurbætur sem gerðar voru eftir að skipið var afhent. Talið var að leggja bæri kaupsamning og afsal til grundvallar lögskiptum G og S og var G dæmdur til að greiða S 625.000 kr. Ekki var talið sannað að G hefði tekið á sig að greiða kostnað við endurbæturnar sem fram fóru eftir afhendingu skipsins og var krafa S um endurgreiðslu kostnaðar ekki tekin til greina.
...apríl 1995 hafi birst í Stjórnartíðindum reglugerð nr. 210/1995. Sú reglugerð hafi breytt eldri reglugerð nr. 592/1994 um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15...