Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1164/2011"
2 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M ehf. o.fl. gegn íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í málinu kröfðust M ehf. o.fl. þess aðallega að viðurkennd yrði með dómi skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns sem M ehf. o.fl. töldu sig hafa orðið fyrir vegna setningar reglugerðar nr. 477/2011 um bann við notkun haukalóða við lúðuveiðar og reglugerðar nr. 1164/2011 um bann við veiðum á lúðu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 hefði í fjölda dóma réttarins verið skýrð svo að sá sem höfðar mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu yrði að leiða nægar líkur að því að hann hefði orðið fyrir tjóni og gera grein fyrir því í hverju tjón hans fælist og hver tengsl þess væru við hið ætlaða skaðaverk. Í málinu lægju fyrir upplýsingar um afla báta M ehf. o.fl. og söluverðhæti aflans á vissu tímabili. Á hinn bóginn höfðu M o.fl. ekki lagt fram gögn til að leiða líkur að því að þeir hefðu orðið fyrir tjóni sem rakið yrði til þess að þeim var meinað að stunda veiðarnar. Var málatilbúnaður þeirra að þessu leyti vanreifaður og var staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um að vísa frá dómi kröfum þeirra er lutu að viðurkenningu á skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins. Þá var talið að krafa M o.fl. um að fyrrnefnda reglugerðin yrði dæmd ógild og óskuldbindandi fæli í sér lögspurningu þar sem hún beindist ekki að ákveðnu sakarefni. Fór sú kröfugerð M o.fl. í bága við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 og var því jafnframt staðfest sú niðurstaða hins kærða úrskurðar að vísa þeirri kröfu frá dómi.
...desember 2011 hafi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra staðfest og gefið út reglugerð nr. 1164/2011, um bann við veiðum á lúðu, sem falið hafi í sér algjört bann við lúðuveiðum. Samkvæmt...
Máli stefnenda vegna kröfu um viðurkenningu á bótaskyldu ríksins vegna setninga reglugerða nr. 477/2011 um bann við notkun haukalóða við lúðuveiðar og nr. 1164/2011 um bann við veiðum á lúðu vísað frá dómi. Stefnendur þóttu ekki hafa sýnt fram á lögvarða hagsmuni af kröfugerðinni auk þess sem 2. varakrafa stefnenda þótti fela í sér lögspurningu.
...desember 2011 hafi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra staðfest og gefið út reglugerð nr. 1164/2011, um bann við veiðum á lúðu, sem falið hafi í sér algjört bann við lúðuveiðum. Samkvæmt...