Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1102/2013"
1 dómar fundust
E hf. höfðaði mál gegn Í og gerði þá kröfu að ógiltir yrðu úrskurður yfirskattanefndar og úrskurður ríkisskattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda E hf. fyrir gjaldárin 2014 og 2015 vegna óbeins eignarhalds E hf. á lögaðilum í ríkjunum Antígva og Barbúda. Byggði Í á því að hagnaður E hf. vegna óbeins eignarhalds E hf. á lögaðilum í fyrrgreindum ríkjum félli undir gildissvið 57. gr. a. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og hefði E hf. því borið að gera grein fyrir þeim tekjum og greiða tekjuskatt af hagnaðinum. Byggði E hf. á því að 57. gr. a. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt tæki ekki til hagnaðar félaganna í Antígva og Barbúda þar sem færeysk félög stæðu á milli E hf. og félaganna og að þau hefðu sætt eðlilegri skattlagningu í Færeyjum. Jafnframt taldi E hf. að undantekningarákvæði 4. mgr. 57. gr. a. laga nr. 90/2003 leysti félagið undan skattskyldu. Í dómi Landsréttar var litið til þess að fyrrgreindir lögaðilar á Antígva og Barbúda hefðu verið skráðir í lágskattaríki í skilningi 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003 og væru CFC-félög í skilningi reglugerðar nr. 1102/2013. Tók Landsréttur fram að svo unnt væri að leggja til grundvallar að ekki væri um eignatekjur að ræða í skilningi 1. töluliðar 4. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003 þyrfti eðli máls samkvæmt að sýna fram á að tekjurnar stöfuðu af raunverulegri atvinnustarfsemi. Að virtum þeim atriðum sem fram kæmu í 6. gr. reglugerðar nr. 1102/2013 og sem líta skyldi til við mat á því hvort því skilyrði væri fullnægt taldi Landsréttur að fallast yrði á það með héraðsdómi að E hf. hefði ekki sýnt fram á að svo væri. Að þessu virtu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um annað en málskostnað.
...Var það gert með reglugerð nr. 1102/2013 um skattlagningu vegna eignarhalds í lögaðilum á lágskattasvæðum. 11 Í 3. gr. reglugerðar nr. 1102/2013 eru svokölluð CFC-félög skilgreind svo...