Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 11/2008"
1 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli L ehf. á hendur LB ehf., þar sem aðilar deildu um gildi leigusamnings um land í eigu L ehf. og eignarhluta L ehf. í F ehf., var vísað frá dómi. Fyrir lá að á hluthafafundi í F ehf. í desember 2011 hafði hluthafaskrá F ehf. verið breytt á þann hátt að L ehf. var ekki lengur skráður hluthafi í félaginu eftir fundinn. Taldi héraðsdómur því að L ehf. hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að kröfur L ehf. væru meðal annars á því reistar að tilteknar ákvarðanir, sem teknar hefðu verið á hluthafa- og stjórnarfundum í F ehf., þar með töldum áðurnefndum fundi í desember 2011, hefðu verið ólögmætar og fundirnir sjálfir ólögmætir. L ehf. hefði því haft lögvarða hagsmuni af því að fá úr þessum málsástæðum leyst og hefði héraðsdómara borið að taka efnislega afstöðu til þeirra með rökstuddum hætti, sbr. 2. mgr. 25. gr. og e. og f. liði 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var ekki talið að ákvæði 1. mgr. og 2. mgr. 116. gr. og e-liðar 1. mgr. 80. gr. sömu laga stæðu því í vegi. Felldi Hæstiréttur því hinn kærða úrskurð úr gildi og lagði fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
...er leigu á tekjuskapandi atvinnuréttindum, sem falla undir reglugerð nr. 11/2008 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2008 - 2013. Í þriðja lagi fjalli greinin um leigu á hlutafé Fasteignafélags Lambeyra...