Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1088/2012"
1 dómar fundust
Aðila greindi á um hvaða árslaun leggja ætti til grundvallar við útreikning bóta vegna varanlegrar örorku sem stefnandi bjó við eftir umferðarslys, en bótaskylda stefnda sem vátryggjanda var óumdeild auk þess sem aðilar voru sammáa um að leggja ætti til grundvallar að fyrir hendi væru óvenjulegar aðstæður í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Ekki þóttu efni til að fallast á aðalkröfu stefnanda um að miða við meðaltekjur við sérfræðistörf í félagsráðgjöf en varakrafa stefnanda um að miðað væri við meðaltekjur sjúkraliða var tekin til greina. Að mati dómsins lágu fyrir haldbærar skýringar á hvernig tekjuöflun stefnanda, sem var enn ungur að árum þegar slysið varð, var háttað fyrir slysið og fyrstu árin eftir það. Að teknu tilliti til atvika allra þóttu meðaltekjur sjúkraliða vera sanngjarn og eðlilegur mælikvarði á framtíðartekjur stefnanda sem var menntaður sjúkraliði og hafði hafið störf sem slíkur.
...Samkvæmt reglugerð nr. 1088/2012 um menntun, réttindi og skyldur félagsráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi hafi þeir einir rétt til að kalla sig félagsráðgjafa og starfa...