Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1077/2004"
1 dómar fundust
Í málinu kröfðust ÁS og H ehf. ómerkingar tiltekinna ummæla um þau sem birtust í grein ÁSÁ á bloggsvæði hans á tilgreindum vefmiðli. Þá gerðu þau kröfu um að honum yrði gert að greiða sér miskabætur vegna þeirra. Fyrirsögn greinarinnar var „Dýraníð að Dalsmynni“ og beindist umfjöllunin einkum að ætlaðri illri meðferð ÁS og H ehf. á hundum sem þar voru ræktaðir til sölu á almennum markaði, meðal annars var staðhæft með almennum hætti að ÁS hefði brotið gegn dýraverndarlögum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar ummælin væru virt og metið hvort þau fælu í sér ærumeiðingar og aðdróttanir í garð ÁS og H ehf., bæri að gera það í því ljósi að nokkur almenn umræða hefði átt sér stað um starfsemi þeirra og að ÁSÁ hefði látið sig varða dýravernd og málefni dýra og teldi sig hafa sérfræðiþekkingu á reglum sem gilda á því sviði. Talið var að orðið dýraníð fæli í sér ásökun um slæma eða svívirðilega meðferð á dýrum. ÁSÁ hefði verið fullkunnugt um inntak orðsins og hefði engin þörf verið á að nota slíkt gífuryrði í fyrirsögninni. Hvað varðaði hin meintu lögbrot ÁS taldi Hæstiréttur að ÁSÁ hefði ekki hagað ummælunum eins og um væri að ræða gildisdóm, eins og hann hélt fram, heldur þvert á móti eins og staðreyndin væri sú að ÁS hefði af ásetningi brotið gegn dýraverndarlögum. Hefði ÁSÁ því gerst brotlegur við 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og voru framangreind ummæli því ómerkt. Á hinn bóginn var ekki fallist á að ómerkja bæri tiltekin ummæli ÁSÁ um að ÁS hefði „eitthvað að fela“ þar sem hún leyfði ekki myndatökur af aðbúnaði hundanna á starfstöðinni. Talið var, í ljósi þeirrar almennu umræðu sem fram hefði farið um starfsemi ÁS og H ehf., að með því að hafna slíkri beiðni hefðu þau getað búist við gagnrýni í þá veru sem ÁSÁ hafði uppi að þessu leyti. Loks var ekki fallist á kröfu ÁS og H ehf. um birtingu dóms. Samkvæmt öllu framansögðu var ÁSÁ gert að greiða ÁS 200.000 krónur í miskabætur.
...svo áfrýjandi í grein sinni um ábyrgð þess ráðherra, sem gefið hafði út reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni. Áfrýjandi lýsti þeirri skoðun...