Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1035/2018"

2 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2025

E-1623/2024

A (Helga Reynisdóttir lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar miskabætur úr hendi stefnda vegna skorts á upplýsingagjöf vegna umsóknar hennar um sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk sem hún beið eftir um tíu ára skeið.

...38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og reglugerð nr. 1035/2018 um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu. Af gögnum málsins yrði ekki ráðið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2024

E-3204/2023

A (Flóki Ásgeirsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Ebba Schram lögmaður) og íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Stefnandi hafði uppi miskabótakröfu, aðallega gegn stefnda Reykjavíkurborg en til vara íslenska ríkinu, vegna óréttmætra tafa sem orðið hefðu á veitingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar henni til handa, svo og vegna skorts á upplýsingagjöf meðan á töfunum stóð. Í dóminum var fallist á kröfur stefnanda um miskabætur úr hendi aðalstefnda, Reykjavíkurborgar, þar sem engar haldbærar ástæður voru fyrir drætti á afgreiðslu umsóknar stefnanda um notendastýrða persónulega aðstoð árið 2019, en aðalstefndi hafði úthlutað samningum vegna slíkrar aðstoðar til fimm annarra einstaklinga í júlí það ár.

...Á grundvelli laganna hafi einungis verið settar tvær reglugerðir þar sem fjallað sé um biðlista o.fl., annars vegar reglugerð nr. 1035/2018 um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma...