Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lög: Lög um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum. nr. 95/1996
lögum nr. 69/1995. Með ákvörðun bótanefndar 16. mars 2006 var Í gert að greiða tjónþolanum B bætur vegna líkamsárásar H og V. Í höfðaði mál og krafðist greiðslu úr hendi H og V. Byggði Í kröfu sína á 19. gr. laga nr. 69/1995 um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, þar sem segir að ríkissjóður eignist rétt tjónþola gagnvart tjónvaldi ef ríkissjóður greiði bætur samkvæmt lögunum. Talið var að skilyrði slíkrar kröfu væri að viðkomandi tjónvaldur hafi átt þess kost að gæta hagsmuna sinna við meðferð kröfunnar fyrir dómi eða að öðrum kosti fyrir bótanefndinni, meðal annars með því að kynna sér þau gögn sem lægju til grundvallar kröfunni og tjá sig um þau áður en ákvörðun yrði tekin. Þar sem H og V hefðu ekki notið þessa réttar, áður en nefndin tók þá ákvörðun sem krafa á hendur þeim byggði á, var talið að hún gæti ekki orðið grundvöllur kröfu samkvæmt fyrrnefndu ákvæði. Þegar af þessari ástæðu voru H og V sýknaðir af kröfu Í.