Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 12. gr. laga nr. 92/1994 — Lög um Þróunarsjóð sjávarútvegsins
Á grundvelli 12. gr. laga um Þróunarsjóð sjávarútvegsins nr. 92/1994 skyldi „starfsfólk og aðrir eigendur” fyrirtækja, sem sjóðurinn átti hlutafé í, eiga forkaupsrétt við sölu sjóðsins á hlutabréfum í viðkomandi fyrirtæki. Við sölu á hlutabréfum sjóðsins í B var Á, sem var í stjórn B, ekki boðinn forkaupsréttur á hlutabréfunum fyrr en hann leitaði eftir því hjá starfsmanni sjóðsins, en þá var honum sent sams konar bréf og starfsmönnum B. Á tilkynnti að hann óskaði sem starfsmaður B eftir að neyta forkaupsréttarins, en stjórn sjóðsins hafnaði ósk hans. Krafðist Á skaðabóta úr hendi sjóðsins vegna þess, sem hann taldi vera ólögmæta riftun. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að bundið væri í lögum hverjir gætu neytt forkaupsréttar á hlutabréfum sjóðsins og að stjórnarmenn í hlutafélagi gætu ekki talist starfsmenn þess. Var Á því ekki talinn eiga forkaupsrétt og ákvörðun stjórnar sjóðsins um að hafna ósk Á um að neyta forkaupsréttar því talin lögmæt, þótt honum hafi verið boðinn forkaupsréttur af hálfu sjóðsins. Var sjóðurinn sýknaður af kröfum Á.