Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 92/1994 — Lög um Þróunarsjóð sjávarútvegsins

Hæstiréttur birt 4. febrúar 1999

253/1998

Þróunarsjóður sjávarútvegsins (Karl Axelsson hrl) gegn Vinnslustöðinni hf (Helgi Jóhannesson hrl)

V krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi ólögmæti vinnureglu Þróunarsjóðs sjávarútvegsins þess efnis að sá sem óskaði eftir kaupum Þ á fiskvinnslustöðvum til úreldingar á grundvelli 9. gr. laga nr. 92/1994 yrði að finna kaupanda að viðkomandi húsnæði áður en Þ tæki ákvörðun um kaupin og að kaupandi yrði að skuldbinda sig til að stunda óskylda starfsemi í húsnæðinu. Þá krafðist V þess að Þ yrði gert að afgreiða umsókn V um úreldingu ákveðinna fiskvinnsluhúsa þrátt fyrir að V hefði ekki fundið kaupanda að húsnæðinu. Þ krafðist þess að málinu yrði vísað frá héraðsdómi þar sem ljóst hefði verið frá upphafi að ákvæði 1. mgr. 9. gr. laga nr. 92/1994 fæli einungis í sér tímabundna heimild til að kaupa fiskvinnsluhús og hefði heimildin verið útrunnin þegar V hóf málsókn sína. Því væri Þ ókleift og óheimilt að uppfylla kröfur V um afgreiðslu umsóknar sinnar. Talið að þar sem heimildir Þ voru tímabundnar gæti umfjöllun um umsókn V ekki leitt til annars en synjunar á þeirri forsendu, V var ekki talinn hafa lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um kröfur sínar eins og þær voru úr garði gerðar. Var málinu vísað frá héraðsdómi.