Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. gr. laga nr. 87/2003 — Lög um Orkustofnun
Ágreiningur málsaðila átti rætur að rekja til málshöfðunar F ehf. gegn U, H hf. og L hf. meðal annars til ógildingar á nánar tilgreindum úrskurði úrskurðarnefndar raforkumála og viðurkenningar á skaðabótaskyldu H hf. og L hf. vegna tjóns F hf. sem leiddi af uppsögn á nánar tilgreindum samningi aðila um tengingu við dreifikerfi H hf. og L hf. Með úrskurði héraðsdóms var kröfu um ógildingu fyrrnefnds úrskurðar vísað frá þar sem Raforkueftirliti U var ekki stefnt til varnar, enda væri um að ræða sjálfstæðan lögaðila sem gæti átt réttindi og borið skyldur samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í úrskurði Landsréttar var rakið að þegar málið hefði verið höfðað hefði ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 110/2024 um Umhverfis- og orkustofnun, þar sem mælt er fyrir um skipun skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins, ekki tekið gildi. Yrði því að líta svo á að þá hefði forstjóri U borið stjórnunarlega ábyrgð á rekstri Raforkueftirlitsins, sbr. 2. gr. laga nr. 110/2024. Hafði Raforkueftirlitið ekki aðildarhæfi á þeim tíma og var því réttum aðila stefnt til varnar. Var ákvæði úrskurðar héraðsdóms því fellt úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar um þá kröfu. Þá var staðfest ákvæði hins kærða úrskurðar um frávísun á viðurkenningarkröfu F ehf.