Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992 — Lög um gjaldeyrismál

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2011

38/2011

Seðlabanki Íslands (Gizur Bergsteinsson hdl) gegn Pálma Sigmarssyni (Stefán Geir Þórisson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem tekin var til greina krafa P um að leitað yrði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um nánar tilgreind atriði í tengslum við mál hans á hendur S. Í málinu krafðist P ógildingar á ákvörðun S um að hafna beiðni P um innflutning á innlendum gjaldeyri en P hafði óskað eftir undanþágu til að flytja inn innlendan gjaldeyri til landsins á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Reisti P kröfur sínar m.a. á því að ákvörðunin væri andstæð ákvæðum EES-samningsins um frjálsa fjármagnsflutninga milli ríkja. Í Hæstarétti var talið að skýra yrði hinar matskenndu heimildir 7. gr. fyrrgreindra laga til að veita undanþágur frá takmörkunum á fjármagnshreyfingum með tilliti til 4. kafla III. hluta EES-samningsins sem lagagildi hefði hér á landi. Var héraðsdómur því staðfestur.