Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 4. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. nóvember 2025

E-5511/2024

Vesturbugt ehf (Einar Brynjarsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

Reykjavíkurborg var sýknuð af kröfu fyrrum lóðarhafa um skaðabætur vegna ólögmætrar riftunar samnings til uppbyggingar í Reykjavík og afturköllunar lóðar. Var talið að verulegar vanefndir stefnanda á samningni aðila fælust í tvennu. Annars vegar hafi verið umtalsverðar tafir á að hefja framkvæmdir við verkefnið. Hins vegar hafi stefnanda ekki auðnast að fjármagna framkvæmdir með þeim hætti að hagsmunir stefnda teldust tryggðir á fullnægjandi máta. Við mat á því var einkum horft til hins sérstaka eðlis greiðslna þar sem stefndi lét alla sína greiðslu af hendi í upphafi samningstíma en stefnandi skyldi ekki afhenda sína greiðslu, eðli málsins samkvæmt, fyrr en við lok framkvæmda. Skyldi greiðsla stefnanda felast í fullbúnum íbúðum og bílastæðum í húsunum sem samningur aðila laut að því að reista skyldi á umræddum lóðum.