Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lykilorð: Lóðir
Reykjavíkurborg var sýknuð af kröfu fyrrum lóðarhafa um skaðabætur vegna ólögmætrar riftunar samnings til uppbyggingar í Reykjavík og afturköllunar lóðar. Var talið að verulegar vanefndir stefnanda á samningni aðila fælust í tvennu. Annars vegar hafi verið umtalsverðar tafir á að hefja framkvæmdir við verkefnið. Hins vegar hafi stefnanda ekki auðnast að fjármagna framkvæmdir með þeim hætti að hagsmunir stefnda teldust tryggðir á fullnægjandi máta. Við mat á því var einkum horft til hins sérstaka eðlis greiðslna þar sem stefndi lét alla sína greiðslu af hendi í upphafi samningstíma en stefnandi skyldi ekki afhenda sína greiðslu, eðli málsins samkvæmt, fyrr en við lok framkvæmda. Skyldi greiðsla stefnanda felast í fullbúnum íbúðum og bílastæðum í húsunum sem samningur aðila laut að því að reista skyldi á umræddum lóðum.