Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 7. gr. laga nr. 82/2000 — Lög um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna

Hæstiréttur birt 16. desember 2003

447/2003

Atlantsskip ehf (Ásgeir Þór Árnason hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Kærumál. Kröfugerð. Vanreifun. Lögvarðir hagsmunir. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi að hluta. Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli A ehf. var vísað frá dómi. Var kröfugerð félagsins í tveimur liðum þar sem þess var annars vegar krafist að viðurkennt yrði að forvalsnefnd væri óheimilt að setja nánar tiltekin skilyrði fyrir vali á íslenskum fyrirtækjum vegna vöruflutninga milli Íslands og Bandaríkjanna og hins vegar að málsmeðferð forvalsnefndar yrði ógilt. Fallist var á með A ehf. að það hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn fyrir dómi um lögmæti þeirra skilyrða, sem því var gert að hlíta til að fá að taka þátt í útboðinu. Yrði að líta til þess að í bréfi til A ehf. hefði því verið lýst yfir að tilkynning til Bandaríkjahers um heimild félagsins til að taka þátt í útboðinu yrði afturkölluð 10 dögum fyrir lok tilboðsfrests hefði það þá ekki staðið við sett skilyrði. Hin umdeildu skilyrði væru því enn í gildi að því er varðaði heimild félagsins til að fá að taka þátt í útboðinu. Var úrskurðurinn að því er varðaði þennan kröfulið felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka hann til efnismeðferðar. Hins vegar var úrskurður héraðsdóms staðfestur varðandi síðari lið kröfugerðarinnar sem ekki var talinn vera í samræmi við skilyrði e- liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991.