Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 30. gr. laga nr. 79/2008 — Lög um endurskoðendur

Hæstiréttur birt 27. janúar 2014

811/2013

Vilhjálmur Bjarnason (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Vigni Rafni Gíslasyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni (Reimar Snæfells Pétursson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Vitni.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi um skyldu vitnis, löggilta endurskoðandans VRG, til að gefa skýrslu í héraði í tengslum við öflun VB á sönnunargögnum án þess að mál hefði verið höfðað samkvæmt 2. mgr. 77. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Fyrir Hæstarétti laut ágreiningur aðila að spurningu, sem VB beiddist að VRG yrði gert skylt að svara, um aðdraganda og ástæður að baki fundi er lýst var í tilteknu skjali. Hæstiréttur vísaði til þess að fyrrgreint skjal varðaði lögboðna upplýsingagjöf fjármálafyrirtækis til Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og þágildandi lögum nr. 144/1994 um ársreikninga auk þess sem almennur aðgangur væri að efni skjalsins samkvæmt fyrirmælum laga nr. 3/2006 um ársreikninga. Að þessu virtu taldi rétturinn þagnarskylduákvæði laga nr. 161/2002, laga nr. 3/2006 og laga nr. 79/2008 um endurskoðendur ekki standa því í vegi að VRG yrði gert skylt að svara spurningu VB. Á hinn bóginn taldi Hæstiréttur að VRG væri ekki skylt að svara spurningunni að því marki sem slíkt kynni að fella á hann ábyrgð af því tagi sem greindi í 3. mgr. 52. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.