Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 45. gr. laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2008

187/2007

Hrafnhildur Njálsdóttir (Stefán Geir Þórisson hrl, Ólafur Örn Svansson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl, Sigurður Gísli Gíslason hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

H krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður yfirskattanefndar varðandi tekjufærslu söluhagnaðar hennar á skattframtali 2003 vegna tekjuársins 2002. Jafnframt krafðist hún þess að viðurkennt yrði með dómi að henni hefði verið heimilt að nota frestaðan söluhagnað á skattframtali 2002 vegna tekjuársins 2001 til endurfjárfestingar í fyrirtæki í Danmörku á árinu 2002. Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt eru meginskilyrði fyrir því að komast hjá skattlagningu söluhagnaðar að eignir sem fyrnanlegar eru samkvæmt 32. gr. laganna yrðu fyrndar sem söluhagnaðinum nam. Í málinu voru engin gögn um þann rekstur, sem H sagðist hafa hafið í Danmörku og af þeim skattgögnum frá Danmörku sem lögð voru fram í málinu varð ekki ráðið að hún hefði haft skattskyldar rekstrartekjur þar í landi. Af yfirlýsingu H í stefnu til héraðsdóms var þó ljóst að skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 75/1978 var ekki fullnægt. Var Í því sýknað af kröfu H og reyndi ekki á reglur samnings um Evrópska efnahagssvæðið.