Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. mgr. 102. gr. a laga nr. 75/1981 — Lög um tekjuskatt og eignarskatt

Hæstiréttur birt 28. febrúar 2001

50/2001

Fimleikafélag Hafnarfjarðar (Valgarður Sigurðsson hrl) gegn sýslumanninum í Hafnarfirði (Sigrún Guðmundsdóttir hrl)
Lykilorð: Kærumál. Fjárnám. Skattur. Aðild.

A krafði Í um bætur vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Opinbert mál hafði verið höfðað gegn A vegna gruns um að hann hefði dregið sér fé en hann verið sýknaður. Taldi A að Í hefði bakað sér tjón með rannsóknaraðgerðum lögreglu og málsmeðferð í sakamálinu sem hefði verið höfðað án nægjanlegs tilefnis. Fallist var á að Í hefði ekki fært fram viðhlítandi rök fyrir því að nauðsyn hefði borið til að halda A í gæslu í rúmar tvær klukkustundir á rannsóknarstigi hins opinbera máls. Þá var fallist á að ekki hefði verið ástæða til að endurtaka leit á heimili A og í sameign fjöleignarhúss, sem hann bjó í. Voru honum dæmdar miskabætur vegna þessa. Þá var fallist á að A bæru skaðabætur vegna skyrtu sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins en ekki skilað. Hins vegar var hafnað að ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991 fælu í sér heimild til að dæma bætur vegna þess að A hefði verið sóttur til sakar án nægjanlegs tilefnis. Þótti ekki sýnt að skilyrði væru til slíkra bóta á grundvelli sakarreglunnar. Þá var hafnað kröfu A um bætur vegna mismunar á lögmannskostnaði samkvæmt gjaldskrá og tildæmdum málsvarnarlaunum í sakamálinu.