Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 37. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög
Stefnendur kröfðust þess að stefndu yrði gert að klippa trjágróður á lóð hennar vegna sjónmengunar sem stefnendur töldu stafa af trjánum. Þá kröfðust þau þess að stefndu yrði gert að klippa og fjarlægja trjágróður og rætur sem vaxið hefði yfir lóðamörk aðilanna. Með vísan til meginreglna nábýlisréttar, aðstæðna og trjágróðurs á viðkomandi svæði og þess að ekki hefði verið sýnt fram á að óþægindi stefnenda væru slík að fallast bæri á kröfur þeirra var stefnda sýknuð af kröfu um að klippa niður umræddan trjágróður. Þá var kröfu stefnenda um að trjágróðri væri viðhaldið í tiltekinni mynd vísað frá dómi. Á hinn bóginn var krafa stefnenda, um að stefndu yrði gert að fjarlægja trágróður sem vaxið hafði yfir lóðamörk aðilanna, tekin til greina.