Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 27. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög

Hæstiréttur birt 22. júní 2000

52/2000

Dalabyggð (Ólafur Sigurgeirsson hrl) gegn Guðmundi Agnari Guðjónssyni (Helgi Birgisson hrl)
Lykilorð: Ábúð. Byggingarbréf.

G hafði, nær óslitið frá árinu 1966, stundað búskap á jörðinni H, sem var í eigu sveitarfélagsins D. Upp kom ágreiningur með G og D og höfðaði D útburðarmál gegn G á síðari hluta árs 1998. Með dómi Hæstaréttar í málinu var kröfum D hafnað. Höfðaði D síðar mál þetta og krafðist þess að G yrði dæmdur til að víkja af H. Ekki var talið að fram væru komnar nýjar upplýsingar frá fyrra máli um að G hefði vanrækt viðhaldsskyldur á jörðinni. Þá var ekki talið að G hefði borið að ganga að skilmálum byggingarbréfa sem sveitarfélagið lagði fyrir hann, á þeim tíma er það var gert. Loks var ekki fallist á að G hefði vanefnt greiðslur fasteignagjalda og afgjalda af jörðinni þannig að sveitarfélagið gæti beitt úrræðum samkvæmt 1. mgr. 30. gr. ábúðarlaga. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna G af kröfum D.