Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 140. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
BlueWest ehf, Friðgeiri Guðjónssyni, Gabriel Alexander Fest og Sigtryggi Leví Kristóferssyni (
Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
RH ehf., nú BW ehf., FG, GAF og SLK voru gefin að sök brot gegn lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd og auglýsingu nr. 161/2019 um staðfestingu á stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins á Hornströndum með því að hafa staðið fyrir, skipulagt og selt útsýnisflug með tveimur þyrlum um friðlandið og fyrir að hafa flogið þyrlunum og lent þeim þar án leyfis Umhverfisstofnunar. BW ehf., FG, GAF og SLK gengust við háttseminni en töldu sig ekki bera refsiábyrgð á henni. Í dómi Landsréttar var rakið að útsýnisflug með þyrlum yfir friðlandinu væri ekki leyfisskylt og kom því ekki til álita að refsa ákærðu fyrir það. Þá var rakið að Hornstrandir voru friðlýstar árið 1975 og með heimild í 2. mgr. 40. gr. laga nr. 60/2013 var ráðherra heimilt að fela Umhverfisstofnun að setja nánari reglur um umferðarrétt manna í stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins sem gert var með auglýsingu nr. 161/2019. Væri í 9. gr. reglna í auglýsingunni kveðið á um það með afdráttarlausum hætti að óheimilt sé að lenda þyrlum innan friðlandsins nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Fallist var á að fyrrgreind regla, sem sett væri með stoð í 81. gr. laga nr. 60/2013, væri gild refsiheimild samkvæmt 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. Öðrum röksemdum ákærðu fyrir sýknu var einnig hafnað. BW ehf., FG, GAF og SLK voru því sakfelldir og var þeim gert að greiða sektir í ríkissjóð en FG, GAF og SLK skyldu ella sæta fangelsi í sex daga.
Ákæruvaldið (
Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri)
gegn
X, Y, Z og Q (
Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
Þyrluflugmenn og vinnuveitandi þeirra sýknaðir vegna lendingar tveggja þyrlna á lendingarstað flugvéla í Fljótavík í Hornstrandafriðlandi