Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 99. gr. laga nr. 60/1994 — Lög um vátryggingastarfsemi

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

150/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Helgu Markúsdóttur (Helgi Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

H var sakfelld fyrir hafa brotið gegn 2. mgr. 6. gr. og 62. gr. laga nr. 32/2005 um miðlun vátrygginga, sbr. 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa sem framkvæmdastjóri H ehf. staðið fyrir því að hafin var miðlun vátrygginga fyrir hönd félagsins í 34 tilvikum árið 1999 án starfsleyfis. Hún var ennfremur sakfelld fyrir umboðssvik, sbr. 249. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa á frá október 1999 til janúar 2000 staðið fyrir því að tveimur erlendum tryggingafélögum voru sendar 23 umsóknir um tryggingar í nafni H ehf., sem þáði umboðslaun fyrir, þó að tryggingatakarnir hefðu veitt starfsmönnum V ehf. umboð til þeirrar ráðstöfunar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að eftir uppkvaðningu héraðsdóms hafði lögum verið breytt þannig að viðurlög við þeim brotum, sem H hafði gerst sek um samkvæmt I. lið ákæru, voru orðin vægari en áður var. Þá var óumdeilt að hún hafði bætt allt það tjón, sem leiddi af brotum hennar, auk þess sem verulegur dráttur varð á rannsókn málsins og ákvörðun um saksókn. Með hliðsjón af þessu þótti hæfileg refsing vera skilorðsbundið fangelsi í 3 mánuði.