Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum. nr. 59/1998

Hæstiréttur birt 18. desember 2008

341/2008

Ákæruvaldið gegn Helga Ragnari Guðmundssyni (Kristín Edwald hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

H var gefið að sök að hafa sem framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi F.H. Verks ehf. eigi skilað virðisaukaskattskýrslum félagsins á lögmæltum tíma vegna tilgreindra uppgjörstímabila og að hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti vegna sömu tímabila, samtals að fjárhæð 11.658.207 krónur. Þá var honum gefið að sök að hafa ekki á lögmæltum tíma staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna tilgreindra tímabila og að hafa eigi skilað staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins vegna tilgreindra tímabila, samtals að fjárhæð 12.618.906 krónur. H játaði brot sín og var því farið með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Við flutning um lagaatriði og viðurlög í héraði lét ákæruvaldið bóka: „Ákæruvaldið kveðst fallast á það með vísun til framlagðra gagna að ákærðu hafi fyrir útgáfu ákæru þegar greitt 1/3 hluta vangoldins virðisaukaskatts og vangoldinnar staðgreiðslu.“ Var H dæmdur í héraði til að sæta fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað. Þá var honum gert að greiða 2.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í 68 daga. Fyrir Hæstarétti krafðist ákæruvaldið þyngingar á refsingu H og byggðist krafan einkum á því að við mat á refsingu hans hefðu innborganir á skattskuldir verið metnar ranglega. Í dómi Hæstaréttar sagði meðal annars að í héraði hefði ákæruvaldið byggt á því að H hefði fyrir útgáfu ákæru innt af hendi greiðslu á verulegum hluta skatts vegna hvers gjaldtímabils og hefði málið verið rekið sem játningarmál á þeirri forsendu. Þótti því ekki ástæða til að hnekkja ákvörðun héraðsdóms um refsingu H og var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. apríl 2008

S-161/2008

Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson ftr) gegn Helga Ragnari Guðmundssyni (Garðar Guðmundur Gíslason hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því að ákærði hafði staðið skil á verulegum hluta þeirrar fjárhæðar sem ákært var út af. Brot ákærða gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda þótti meiri háttar og því var einnig sakfellt fyrir brot gegn 262. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákveðin 2.500.000 krónur í sekt og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.