Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 41. gr. laga nr. 59/1992 — Lög um málefni fatlaðs fólks

Landsréttur birt 11. desember 2019

665/2019

A (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður) gegn Suðurnesjabæ og Sveitarfélaginu Vogum (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)

Kærður varð úrskurður héraðsdóms þar sem máli A gegn S og SV var vísað frá dómi á þeim grundvelli að málatilbúnaður A samræmdist ekki d- og e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í málinu krafðist A þess að viðurkennt yrði að vegna fötlunar sinnar hefði hún átt rétt á sólarhringsþjónustu frá S og SV frá 8. nóvember 2012, þegar niðurstöður úr mati á stuðningsþörf hennar lágu fyrir. Jafnframt krafðist hún peningagreiðslu sem samsvaraði kostnaði af sólarhringsþjónustu frá sama tíma og til 30. apríl 2013, þegar nýr samningur um þjónustu við A tók gildi. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að A hefði ekki sýnt fram á að hún hefði lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn viðurkenningarkröfu sinnar enda væri réttur hennar til þjónustu úr hendi S og SV óumdeildur. Að því er laut að fjárkröfu A hefði engin grein verið gerð fyrir vinnuframlagi eða útgjöldum vegna þjónustu við A eða hvort skilyrðum þjónustutilboðs og samningsdraga hefði verið fullnægt af hálfu A á umræddu tímabili. Væri kröfugerð A því svo vanreifuð að efnisdómur yrði ekki lagður á fjárkröfur hennar. Enn fremur gætu dómstólar ekki ákvarðað fjárhæð bóta sem A ætti rétt á úr hendi S og SV enda gengi slíkt í berhögg við 2. gr. stjórnarskrár. Með hliðsjón af framangreindu var úrskurðurinn staðfestur.