Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 29. gr. laga nr. 58/1992 — Barnaverndarlög
Aðilar deildu um forsjá barns. Í héraði lagði M fram yfirlýsingu sína þar sem fram kom að hann væri samþykkur því að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fæli nafngreindum hjónum varanlegt fóstur dóttur hans, svo og að þau færu með forsjá hennar. Í tengslum við þetta lýsti lögmaður, sem fór með málið fyrir M í héraði, þeirri skoðun að M ætti ekki lengur að eiga aðild að því, þar sem framangreind yfirlýsing hans fæli í sér forsjársamning, sem leiddi til aðildarskorts hans. Upp frá þessu var ekki sótt þing af hálfu M en málið rekið áfram milli stefndu. Talið var að samkvæmt 4. mgr. 96. gr. laga um meðferð einkamála hafi M að svo búnu ekki getað áfrýjað héraðsdómi nema með gagnáfrýjun, en endurskoðunar hafi hann getað leitað á dóminum með endurupptöku málsins í héraði. Því hafi brostið skilyrði til málskots M og var málinu vísað sjálfkrafa frá Hæstarétti.