Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 16. gr. laga nr. 54/1978 — Byggingarlög

Hæstiréttur birt 8. desember 2011

227/2011

Ásmundur, S. Jónsson, Sæmundur, Þ. Einarsson og Rafbrú sf (Hákon Árnason hrl) gegn Sigríði Katrínu Þorbjörnsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)

SÞ höfðaði mál gegn Á, SE og R sf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns sem hún kvaðst hafa orðið fyrir þegar rafstraumur fór um hana þegar hún baðaði sig á heimili sínu. Á hafði verið rafvirkjameistari við byggingu hússins og hefði sameignarfélag hans og SE, R sf., séð um raflagnir í það. Fyrir lá að rafmagnsleiðslur höfðu verið ranglega tengdar í íbúð SÞ en að mati dómkvaddra sérfræðinga gátu þau mistök ein og sér ekki orsakað slys eins og það sem SÞ kvaðst hafa orðið fyrir nema hlutur, sem tengdur hefði verið rafkerfi íbúðarinnar, hefði komist í snertingu við baðvatnið. Þar sem SÞ hafði neitað því að slíkt hefði gerst var talið ósannað að röng tenging rafmagnsleiðsla hefði orsakað slysið. Kröfum SÞ var því hafnað. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að í samræmi við 2. mgr. 111. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála hefði héraðsdómi verið óheimilt að byggja niðurstöðu sína SÞ í vil á því að jarðtaug frá vatnslási í baðkari hefði ekki verið tengd ranglega á þann hátt sem hún hélt fram, heldur á annan hátt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2010

E-7281/2006

Sigríður K Þorbjörnsdóttir (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Ásmundi S. Jónssyni (Hákon Árnason hrl), Sæmundi Einarssyni og Rafbrú sf. og Húsagerðinni hf. (Björn Lárus Bergsson hrl), Reykjanesbæ (Guðmundur Pétursson hrl) og Vátryggingafélagi og Íslands hf. (Ólafur Lúther Einarsson hdl)

Stefnanda voru dæmdar örorku- og miskabætur vegna líkamstjóns af völdum rafmagnsslyss.