Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 53/1993 — Lög um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota

Hæstiréttur birt 27. nóvember 2003

223/2003

Bergur Þorri Benjamínsson (Árni Pálsson hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Guðmundur Pétursson hrl)

Í málinu viðurkenndi T hf. bótaskyldu vegna slyss sem B varð fyrir í maí 1999 en deilt var um fjárhæðir. Höfðu aðilar fellt sig að nokkru við niðurstöðu héraðsdóms en deildu um fjárhæð bóta fyrir tímabundið atvinnutjón og varanlega örorku. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans að því leyti sem hann var til endurskoðunar í Hæstarétti, var talið að til frádráttar bótum fyrir tímabundið atvinnutjón ættu að koma greiðslur sem B hafði fengið frá Tryggingastofnun ríkisins og var því kröfum hans um frekari bætur hafnað. Einnig var því hafnað að ákvarða ætti bætur til B, sem var kominn skammt á veg í námi þegar slysið átti sér stað, í samræmi við sérreglu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og ætti 3. mgr. sömu lagagreinar við um aðstöðu B. Einnig var þeirri varakröfu B hafnað að leggja ætti 6% álag á lágmarkslaunaviðmiðun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga vegna mótframlags vinnuveitanda í lífeyrissjóð. Þá var talið að bætur frá almannatryggingum, sem B hefði átt rétt til, kæmu til frádráttar bótagreiðslum og að þær skyldu reiknast til eingreiðsluverðmætis á viðmiðunartímapunkti, eins og T hf. hefði gert. Taldist þessi háttur á útreikningi bóta hvorki í andstöðu við 72. né 65. gr. stjórnarskrárinnar. Voru kröfur B fyrir Hæstarétti því ekki teknar til greina að neinu leyti.