Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 60. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
R höfðaði mál gegn S hf. til viðurkenningar á bótaskyldu félagins úr ábyrgðartryggingu bifreiðar sem lenti í árekstri við tvær lögreglubifreiðar árið 2018 og olli þeim tjóni. Í dómi Landsréttar var rakið að um hefði verið að ræða árekstur skráningarskyldra vélknúinna ökutækja í skilningi 89. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Vátrygging samkvæmt 1. mgr. 91. gr. sömu laga hafi tekið til hvers kyns skaðabótakrafna samkvæmt 89. gr. laganna, enda þótt sök ökumanns, sem var grundvöllur bótaábyrgðar eftir 89. gr., tengdist ekki notkun í skilningi 1. mgr. 88. gr. laganna. Ekki færi á milli mála að tjónið hafi orðið vegna notkunar þeirrar bifreiðar sem tryggð var hjá S hf. Niðurstaða málsins réðist þar með af því hvernig tjóninu skyldi skipt samkvæmt fyrrgreindu ákvæði 89. gr. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var niðurstaða hans um það efni staðfest. Samkvæmt því var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um viðurkenningu á fullri og óskiptri bótaskyldu S hf.
Fallist var á kröfu ríkislögreglustjóra um viðurkenningu bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna árekstrar við lögreglubifreiðar í framhaldi af eftirför lögreglu.