Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 38. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
A og X voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman, ásamt tveimur öðrum, að innflutningi á samtals 4.639,50 g af amfetamíni og 594,70 g af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, en fíkniefnin, sem voru flutt til landsins með hraðsendingarfyrirtæki, fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Var A gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn, látið senda fíkniefnin frá Þýskalandi til Íslands og hafa ætlað að móttaka eða láta móttaka þau. X var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og notað sér aðstöðu sína sem starfsmaður hraðsendingarfyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli til að miðla upplýsingum um hvernig haga skyldi sendingu og móttöku fíkniefnanna þannig að þau kæmust til móttakanda efnanna hér á landi án afskipta yfirvalda. Ákærðu neituðu báðir sök. Framburðir A og X þóttu ekki verða lagðir til grundvallar niðurstöðunni, enda ekkert í málinu sem studdi þá. Talið var sannað með framburðum tveggja meðákærðu, sem voru efnislega á sama veg um flesta þætti málsins og nutu stuðnings af gögnum málsins, að A og X hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem þeir voru ákærðir fyrir. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að brotið var framið í samvinnu, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, efnismagns, efnistegundar og styrks fíkniefnanna. Þá var litið til þess að A hafði áður gerst sekur um fíkniefnabrot og var refsing hans ákveðin 4 ára fangelsi en X 2½ árs fangelsi.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda. Krafa stefnanda var talin fyrnd.