Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 34. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 15. maí 2003

457/2002

Landssamband íslenskra akstursíþróttafélaga (Lárus Blöndal hrl) gegn Gunnari Egilssyni (Garðar Briem hrl, International Sporting Code)
Lykilorð: Félag. Samkeppni.

G, sem var eigandi sérsmíðaðrar torfærubifreiðar og félagi í einu af aðildarfélögum Landssambands íslenskra akstursíþróttafélaga, LÍA, var settur í keppnisbann eftir að hann tók þátt í torfærukeppni utan vébanda sambandsins. Var ástæða keppnisbannsins tilgreind þátttaka G í fyrrnefndri keppni sem væri ólögleg samkvæmt reglum LÍA og alþjóðlega bílasambandsins, FIA, sem sambandið starfaði eftir. Talið var að þeir, sem skipuleggja vildu aksturs keppnir utan vébanda LÍA, hafi mátt ganga út frá því að þýðingarlaust væri að beina umsóknum til sambandsins þar sem það hafi áður gefið út yfirlýsingu sem yrði ekki skilin á annan hátt en að LÍA væri eini aðilinn hérlendis sem skipuleggja mætti aksturskeppnir og að aðrar keppnir væru óheimilar án tillits til þeirra reglna sem giltu um öryggismál og eftirlit. Samkvæmt reglum alþjóðlega bílasambandsins á þeim tíma sem G var settur í keppnisbann var óheimilt að beita þeim til að leggja hömlur á keppnismót eða þátttöku keppenda nema þess væri þörf vegna öryggis eða annarra efnislegra ástæðna, sem þar voru raktar. Hafi LÍA því verið óheimilt að setja G í keppnisbann vegna þátttöku í fyrrnefndri keppni án þess að ganga úr skugga um að keppnin hafi verið andstæð reglum FIA eða öðrum reglum LÍA varðandi öryggismál og skylda þætti, en það hafi sambandið ekki gert. Var því fallist á kröfu G um að LÍA hafi verið óheimilt að banna honum keppni í torfærukeppnum á sínum vegum. Aftur á móti var LÍA sýknað af kröfu G um greiðslu skaða- og miskabóta.