Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 5. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
X var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið án nægjanlegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða umferðarforgang gangandi vegfaranda á gangbraut þar sem umferð er stjórnað með umferðarljósum og þannig ekið á A, sem var gangandi á gangbrautinni með nánar tilgreindum afleiðingum. Var refsing X ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X sýknaður af kröfu A um miskabætur þar sem ekki var talið að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða í skilningi a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Margrét Herdís Jónsdóttir)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot og líkamstjón af gáleysi