Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 11. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 6. nóvember 2014

283/2014

Sigurður Ívar Sigurjónsson (Óðinn Elísson hrl) gegn Yngva Frey Óðinssyni, til réttargæslu og Vátryggingafélagi Íslands hf

S krafði Y um bætur vegna slyss sem hann hafði orðið fyrir er Y hljóp yfir götu, sem S var að hjóla niður, og í veg fyrir S. Í dómi héraðsdóms kom meðal annars fram að S hefði ekki sýnt næga aðgæslu og þá sérstöku tillitssemi sem sýna bæri börnum samkvæmt ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987, enda hefði hann haft svigrúm til að láta Y vita af ferðum sínum mun fyrr en hann gerði greint sinn. Þá yrði að telja að S hefði getað stöðvað hjólið eða í öllu falli dregið úr hraða þess áður en hann og Y rákust saman. Að öðru leyti hefði S ekki tekist að sýna fram á að Y hefði sýnt af sér saknæma háttsemi og var hann því sýknaður. Í dómi Hæstaréttar var niðurstaða héraðsdóms staðfest og tekið fram í því sambandi að þær aðstæður, sem blöstu við S þegar hann kom hjólandi niður götuna, sem var í íbúðahverfi, hefðu krafist þess að S sýndi sérstaka árvekni. Takmarkaðra gagna nyti við um aðdragandann að slysinu en S bæri í samræmi við almennar reglur sönnunarbyrðina fyrir því að Y bæri bótaábyrgð. Væri við mat á þeirri ábyrgð til þess að líta að Y hefði verið 11 ára þegar slysið varð.