Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 9. gr. laga nr. 5/1998 — Lög um kosningar til sveitarstjórna
Í málinu var deilt um gildi sveitarstjórnarkosninga í Árneshreppi sem fram fóru 26. maí 2018. Krafðist Ó þess meðal annars að kosningarnar yrðu ógiltar vegna ágalla á framkvæmd þeirra. Í dómi Landsréttar var meðal annars skírskotað til 94. gr. laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna um að gallar á framboði eða kosningu leiði ekki til ógildingar kosninga, nema ætla megi að þeir hafi haft áhrif á úrslit þeirra. Féllst rétturinn á að annmarkar hefðu verið á undirbúningi og framkvæmd kosninganna en þeir hefðu þó ekki verið þess eðlis að ætla mætti að áhrif hefði haft á úrslit þeirra. Var Á því sýknaður af kröfu Ó um ógildingu kosninganna.
Vísað var frá dómi kröfu stefnenda, E og Ó, þess efnis að viðurkennt yrði með dómi að framkvæmd og undirbúningur sveitarstjórnarkosninga í Árneshreppi 2018, sem fram fóru 26. maí 2018, hafi ekki uppfyllt kröfur laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Stefndi, Á, var sýknaður af þeim kröfum stefnenda að niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna yrði ógilt með dómi og að allar stjórnarathafnir starfandi hreppsnefndar í hreppnum sem gerðar höfðu verið eftir að talningu atkvæða lauk og niðurstaða kosninganna var kunngjörð, yrðu ógiltar.