Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 11. gr. laga nr. 5/1998 — Lög um kosningar til sveitarstjórna

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. maí 2019

E-59/2018

Elías Svavar Kristinsson og Ólafur Valsson (Benedikt Ólafsson lögmaður) gegn Árneshreppi (Jón Jónsson lögmaður)

Vísað var frá dómi kröfu stefnenda, E og Ó, þess efnis að viðurkennt yrði með dómi að framkvæmd og undirbúningur sveitarstjórnarkosninga í Árneshreppi 2018, sem fram fóru 26. maí 2018, hafi ekki uppfyllt kröfur laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Stefndi, Á, var sýknaður af þeim kröfum stefnenda að niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna yrði ógilt með dómi og að allar stjórnarathafnir starfandi hreppsnefndar í hreppnum sem gerðar höfðu verið eftir að talningu atkvæða lauk og niðurstaða kosninganna var kunngjörð, yrðu ógiltar.