Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 5. gr. laga nr. 46/1991 — Lög um búfjárhald, forðagæslu o.fl.
Skaðabætur. Bifreiðir. Búfé. Tilkynning. Aðild. Vanreifun. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. GJ ók bifreið á hrút í eigu GE með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist og hrúturinn drapst. GJ og H, eigandi bifreiðarinnar, kröfðu GE og vátryggingafélagið V, sem GE hafði keypt ábyrgðartryggingu hjá, um bætur vegna fjártjóns sem þau hefðu orðið fyrir. Kröfum GJ á hendur GE og V var vísað frá dómi, enda var ekki talið að skýrt hefði verið af hvaða sökum hann gæti átt aðild að málinu. Vegna aðstæðna á slysstað leiddi af vegalögum að lausaganga búfjár var þar bönnuð. GE var eigi að síður sýknaður af kröfum H þar sem ekki þótti hafa verið færðar fyrir því sönnur að hann hefði sýnt af sér gáleysi. Málinu hafði áður verið vísað til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum, sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að bæta ætti tjón á bifreiðinni úr ábyrgðartryggingu GE. Kvaðst V hafa sent nefndinni bréf og tilkynnt að félagið myndi ekki una niðurstöðu hennar. Sagðist V jafnframt hafa sent H afrit þess bréfs. Gegn mótmælum H þótti það hins vegar ekki sannað og var því talið að V hefði orðið bundið af niðurstöðu nefndarinnar. Kröfu hennar á hendur V var hins vegar vísað frá dómi vegna vanreifunar.