Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 6. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 2. apríl 2004

410/2003

Bráð ehf (Ásgeir Þór Árnason hrl) gegn Veiðimanninum ehf (enginn)

V krafði B um greiðslu vangoldinna reikninga, auk leigugjalds fyrir notkun vörumerkis o.fl. Að teknu tilliti til mótmæla B var reikningsfjárhæð lækkuð að litlum hluta. Jafnframt var B dæmd til greiðslu vanefnds leigugjalds. Skaðabótakrafa B á hendur V vegna ólögmætrar uppsagnar leigusamnings þeirra kom til lækkunar og var B dæmd til greiðslu mismunarins.

Hæstiréttur birt 6. desember 2001

183/2001

Hannes Arnórsson ehf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Aðalbirni Jóakimssyni (Ragnar Halldór Hall hrl)

H ehf. tók að sér múrverk og flísalögn í íbúðarhúsi A. Var samið um að A skyldi greiða fyrir verk, sem H ehf. innti af hendi í hverjum mánuði, í upphafi næsta mánaðar á eftir. A þótti hægt miða hjá H ehf. og gerði samkomulag við fyrirsvarsmann félagsins um að aðrir múrarar myndu annast hluta verkanna. Vorið 1998 boðaði A fyrirsvarsmann H ehf. til fundar við sig til að ræða um verkið. Urðu lyktir mála þær að H ehf. skyldi ljúka þeim verkum, sem hafin voru. Í málinu krafði H ehf. A um greiðslu þriggja reikninga, dagsettra 3. júlí, 7. júlí og 18. ágúst 1998. A hafnaði greiðsluskyldu þar sem verk H ehf. væri uppgert að fullu. Óskaði A eftir því að dómkvaddir yrðu tveir matsmenn til að meta hvert þeir teldu vera hæfilegt endurgjald fyrir vinnu við verk sem hann taldi að H ehf. hefði unnið fyrir hann vorið 1998. Hæstiréttur taldi að fyrsti reikningurinn væri tilhæfulaus með öllu og hafnaði að greiðsluskylda samkvæmt honum væri fyrir hendi. Að því er snerti síðari tvo reikningana voru þeir taldir ósanngjanir og ekki unnt að byggja á þeim, sbr. 5. gr. þágildandi laga um lausafjárkaup nr. 39/1922. Var endurgjald H ehf. ákveðið með hliðsjón af matsgerð hinna dómkvöddu manna, en kröfu félagsins samkvæmt reikningunum um greiðslu fyrir efni og tækjaleigu hafnað. Vegna málatilbúnaðar H ehf. var félaginu gert að greiða A málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.