Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 4. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 27. september 2001

93/2001

G.R Verktakar ehf (Kristinn Bjarnason hrl) gegn Bás ehf (Kristján Þorbergsson hrl)
Lykilorð: Lausafjárkaup. Tómlæti.

G tók að sér að annast tiltekið verk við Skeiðsfossvirkjun í Fljótum fyrir R og samdi við B, sem rak steypustöð, um kaup á steypu. B afhenti G steypu eftir því sem verkinu miðaði á tímabilinu frá apríl til ágúst 1999 og gerði honum reikninga fyrir samtals 558,5m3 af steypu. G greiddi reikningana athugasemdalaust þar til kom að síðasta reikningnum fyrir afhendingu á 45m3 af steypu. Við verklok varð samkomulag milli G og R um að R skyldi greiða G fyrir 521m3 af steypu í samræmi við útboðsskilmála vegna verksins. Þegar B hafði árangurslaust reynt að fá G til að greiða síðasta reikninginn höfðaði hann mál á hendur G í því skyni. Hæstiréttur taldi ósannað að G hefði dregið í efa að hann hefði tekið á móti því steypumagni, sem B krefði hann um greiðslu fyrir, eða mótmælt reikningum á þeim grundvelli fyrr en með greinargerð sinni fyrir héraðsdómi, þ.e. átta mánuðum eftir útgáfu síðasta reikningsins. Hefði G með þessu tómlæti glatað rétti til að bera fyrir sig að hann hefði ekki tekið við því magni steypu, sem B krefði hann um greiðslu fyrir. Var G gert að greiða kröfu B.