Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 9. gr. laga nr. 38/1990 — Lög um stjórn fiskveiða
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli H ehf. gegn Í var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H viðurkenningar á að Í bæri skaðabótaábyrgð á tjóni sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna úthlutunar á byggðakvóta tiltekin fiskveiðiár. Var krafa hans reist á því að ákvarðanir um úthlutanir hafi ekki verið samræmi við reglur og hann hafi því fengið minna í sinn hlut en honum hefði með réttu borið. Í dómi Hæstaréttar kemur m.a. fram að í málinu liggi ekki annað fyrir en að H ehf. hafi lagt stund á útgerð þau fiskveiðiár sem um ræði. Engin efni væru til annars en að líta svo á að H hf. hefði leitt nægar líkur að því að hann hefði orðið fyrir tjóni með því að hafa ekki fengið úthlutað byggðakvóta í þeim mæli sem hann telur að rétt hefði verið þótt engu yrði slegið föstu um hvort annmarkar hafi verið á úthlutun kvótans sem Í geti borið skaðabótaábyrgð á. Enginn vafi væri því á H hf. hefði lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um málið. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.